Mikið hefur verið talað um fyrirsætur í svokölluðum ‘yfirstærðum’ upp á síðkastið og menn velta því fyrir sér í hverju þetta ‘yfir’ liggur.
Allt eru þetta gullfallegar konur, sem nota föt í stærðum yfir 12 og af þeim hreinlega lekur kynþokkinn… en í þessum fatastærðum erum við flestar konur. Þannig er það nú. En hér er listinn…
1. Tara Lynn
Tara Lynn er þekktust fyrir að hafa komið fram á forsíðu ELLE. Lynn er í stærð 18 og greinin fjallaði um hvernig tískubransinn er hægt og rólega að þróast í þá átt að notast meira við fyrirsætur sem hafa eitthvað utan á sér en banna sýningarstúlkum að fara undir ákveðna staðla meðan áður voru þær hvattar til að vera sem grennstar.
Justine kemur frá Quebec í Kanada, hún notar stærð 14.
Christina Mendez komst á spjöld tískusögunnar þegar hún varð ein fyrsta latnesk ameríska fyrirsætan til að taka þátt í stórum herferðum.
Barbara Brickner hefur verið í bransanum í meira en tíu ár. Hún hefur setið fyrir hjá hönnuðum sem hanna sérstaklega stórar stærðir, aðallega fyrir Elena Miro en árið 2000 setti hún sjálf á markað meðgöngufatnað fyrir konur sem nota stærðir yfir 14.
Silvia Rho er kóreönsk að hálfu en amerísk að hálfu og notar stærð númer 16. Hún hefur brjálað að gera í bransanum og því munum við sjá meira af henni í framtíðinni.
Anansa Sims er dóttir fyrirsætunnar Beverly Johnson sem var fyrsta þeldökka konan til að prýða forsíðu bandaríska Vogue árið 1974.
7. Natalie Laughlin
Natalie Laughlin var fyrsta fyrirsætan í ‘yfirstærð’ til að sitja fyrir á risa auglýsingaskilti á Tímatorgi í New York. Hún notar stærðir 12 til 14.
Ashley Graham er þekktust fyrir störf sín fyrir undirfataframleiðandann Lane Bryant. Hún notar stærð nr. 16.
Kate Dillon var með anorexíu sem unglingur en það kom í kjölfar þess hvað henni var strítt út af vaxtarlagi. Fljótlega varð hún fyrirsæta en færði sig yfir í ‘yfirstærðarbransann’ eftir að hafa ráðfært sig við næringarráðgjafa og bætt á sig þannig að hún komst í kjörþyngd en hún er um 1.80 á hæð.
Fluvia Lucerda frá Brasilíu starfaði sem barnfóstra í New York þegar hún var uppgötvuð. Hún starfar nú á alþjóðavettvangi og er stundum kölluð yfirstærðarútgáfan af Gisele Bundchen. Hún notar stærð 18.
Hvernig væri svo að læka og deila þessari færslu ef þú notar stærð yfir 12 og ert heilbrigð og sátt í eigin skinni! Við erum allskonar!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.