Það er alltaf gott að fá hugmyndir um álegg á hrökkbrauð eða annað hollt brauð. Hér koma einfaldar uppskriftir sem gaman er að bjóða gestum, fullkomið í saumó líka!
Hummus
- 300 gr soðnar kjúklingabaunir (hægt að fá í dós)
- 3 msk. tahini
- 1/2 sítróna (safi)
- 2 msk. ólífuolía
- 2 hvítlauksgeirar
- 1 vænn kvistur kóríander
- 1/4 búnt steinselja
- 1/2 tsk. cumminduft
- smá chiliduft
- 3 msk. tamarisósa
- salt ef vill
Setjið allt í matvinnsluvél, nema kjúklingabaunir og tahini, og maukið vel. Bætið síðan kjúklingabaunum út í og að síðustu tahini. Berið fram með pítabrauði eða sem meðlæti með kexi. Einnig gott að borða með sellerí sem millimál.
Grænt pestó
- 1 búnt basil
- 100g lífrænar furuhnetur þurrristaðar í ofni eða lagðar í bleyti
- 2 hvítlauksrif
- smá himalaya eða sjávarsalt
- 1 dl lífræn og kaldpressuð ólífuolía
Allt sett í matvinnsluvél og maukað.
Kórianderpestó
- 1 stórt búnt kóríander
- 1 aðeins minna búnt steinselja eða sleppa og nota bara risabúnt kóríander
- 50 g afhýddar möndlur
- 1 -2 hvítlauksrif
- 1/2 tsk salt
- 1 dl lífræn olía
Setjið allt nema olíu í matvinnsluvél og blandað vel saman.
Berið allt þetta fram í samlokum, á hrökkbrauð eða sem meðlæti með mat. Möguleikarnir eru endalausir!
Guðbjörg er iþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands. Hún hefur verið í líkamsræktarbransanum frá því árið 1989. Alltaf tilbúin að taka að sér krefjandi verkefni. Haldið ýmis þjálfaranámskeið fyrir þolfimikennara og einkaþjálfara auk þess að vera stundakennari við HR íþróttafræði. Undanfarin 19 ár hefur hún starfað með Agústu Johnson en nú hefur hún stofnað sitt eigið fyrirtæki, G fit heilsurækt og elskar að taka þátt í vellíðan fólks og upplifa árangur í líkamsrækt. Guðbjörg á skilningsríkan eiginmann og þrjú yndisleg börn.