Þetta er ekta meistaramánuðsmáltíð! Ekki það að ég sé sérlegur þátttakandi í þessum ágæta mánuði. Ó, nei. Enda fer ég ekki í gegnum 30 daga án rauðvíns. Það er hreint og klárt ofbeldi.
Zucchinipizza
- 1 vænt zucchini skorið í þunnar sneiðar
- Olía
- Salt og pipar
- Pizzasósa
- Ostur
Það álegg sem hugurinn girnist. Ég notaði meðal annars skinku, sveppi og tómata.
Zucchinið er skorið í þunnar sneiðar eins og áður sagði. Sneiðarnar eru steiktar upp úr olíu og kryddaðar með salti og pipar. Þegar sneiðarnar hafa tekið góðan lit er þeim raðað á ofnplötu og álegginu smellt ofan á. Að því loknu er þeim hent inn í 200° heitan ofn og látnar dvelja þar þangað til osturinn er vel bráðinn.
Þetta kemur verulega á óvart! Ég mæli svo sannarlega með því að þú prófir – hollt bæði fyrir bumbuna og samviskuna!
Guðrún Veiga er mannfræðingur að mennt. Týpískt naut, kann vel að meta veraldleg gæði og þrjósk með eindæmum, fagurkeri og eyðslukló.
Naglalökk eru hennar helsti veikleiki og líkamsrækt stundar hún ekki en viðheldur brennslunni með óhóflegri kaffidrykkju.