Cupcakes eða bollakökur hafa lengi vel verið vinsælar í afmælum og veislum almennt.
Mér finnst sniðugt að gera aðeins fleiri kökur en minni, þar sem að sérstaklega börnum þykir kremið bara gott og skilja gjarnan kökurnar sjálfar eftir. Hérna kemur uppskrift að einföldum og góðum súkkulaði cupcakes með dásamlegu smjörkremi sem hittir alltaf í mark.
Cupcakes 45-50 stk litlar
150g sykur
150g púðursykur
125g smjör
2 egg
260g hveiti
1. tsk matarsódi
1. tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
40 g kakó
200 ml mjólk
Aðferð
1. Hrærið saman egg og sykur.
2. Bætið eggjunum saman við og hrærið vel.
3. Bætið þurrefnunum saman við og hrærið vel þannig að blandan verði létt í sér.
4. Bræðið smörið og látið það aðeins kólnaog setjið það svo saman við mjólkina og því næst við blönduna.
5. Sprautið deiginu jafnt í falleg form og bakið við 170 gráður í um 10-12 mínútur.
Þetta fínerí má bera fram í stelpuafmælum, strákaafmælum, við high-tea í heimahúsum og bara hvaða tilefni sem þér finnst hæfa!
Una Dögg Gudmundsdòttir er 28 àra Seltirningur sem býr nú í Vesturbæ ásamt eiginmanni og tveimur dætrum, 7 og 2 ára.
Una Dögg lauk BA prófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands, en verandi pjattrófa inn að beini hefur hún einnig lært nagla og förðunarfræði. Una elskar að baka og elda en henni finnst best að hafa uppskriftirnar einfaldar, fljótlegar og auðvitað dásamlega góðar.