Í janúar fyllast allir af miklum eldmóð í átt að betri heilsu en við verðum að halda áfram að njóta lífsins.
Það er algjörlega ómissandi að eiga slíkt góðgæti í frysti og fá sér einn bita og einn bita inn á milli en hér er uppskrift að bananagóðgæti með súkkulaði og kókos sem þú getur vel fengi þér með góðri samvisku til að lyfta upp bæði blóðsykri og orku.
INNIHALD
- 2 stórir bananar
- 1/4 bolli 70 % súkkulaði, smátt skorið
- 1/4 bolli náttúrulegt hnetusmjör
- kókosmjöl
AÐFERÐ
- Best er að setja smjörpappír í skál, sem þolir frystun.
- Skerið banana í góða-stóra bita. Hver banani ætti að gefa þér um 5 til 6 bita.
- Hitið hnetusmjör og súkkulaði yfir vatnsbaði. Hrærið vel saman.
- Dýfið banana-bita í súkkulaði-hnetu-smjörs blönduna. Að lokum stráið kókos ofan.
Setja í frysti í ca. klukkustund, þar til frosið.
Ómissandi fyrir alla í boðum og veislum og svo gaman að geta notið með góðri samvisku!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.