Hún er algjörlega himnesk þessi brauðloka, gefur bragðlaukunum ótrúlega mikið… þú svífur á einstakri sælu!
INNIHALD
fyrir 2
- 4 sneiðar af næringaríku brauði eða rúnstykki, ristað undir grilli
- 1/4 bolli lárpera/avocado
- 1/4 tsk sjávarsalt
- ferskur mozzarella eða rifinn
- tómatar að þínum smekk
AÐFERÐ
- Ristið brauðið
- Stappið lárperuna með gaffli. Hrærið salti saman við og blandið vel.
- Skerið tómatana til helminga, ef þið notið konfekt-tómata, annars í sneiðar.
Þegar brauðið eru ristað, setjið matskeið af lárperu-maukinu á hverja sneið. Mozarella-ostur skorinn í sneiðar, raðið ofan á annan helming brauðsins og toppið með tómötum, skellið að lokum hinum helmingnum ofan á. Berið strax fram.
Þessi brauðloka er bæði súper-holl og sjúklega góð. Njótið í botn!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.