Mér finnst alltaf ótrúlega mikil stemmning í tortillum.
Þær kæta alla og hver og einn getur ráðið því hvað fer á sína gleði-bombu. Þessi uppskrift er guðdómleg. Dásamlegt bragðið dansar út í eitt við bragðlaukana.
- 1 Tortilla-spelt
- ⅓ bolli parmesan ostur
- 1 msk. tómatsósa (Mér finnst sósan frá Rapzunel æði)
- ½ msk. ólífuolía
- 1 msk. sól-þurrkaðir tómatar
- 1-2 hvítlauksrif, skorinn smátt
- ½ rauðlaukur, skorinn í þunnar sneiðar
- jalapeno (má sleppa)
- salt og pipar
AÐFERÐ
- Hitið ofninn í 180°c
- Olían smurð á tortilluna
- Smyrjið tómatsósu ofan á
- Kryddið með salti og pipar
- Parmesan ostur settur yfir
- Sól-þurrkaðir tómatar, hvítlaukur og rauðlaukur sett yfir ostinn
- Setjið bökuna á grind og bakið í 6-8 mínútur, þar til brúnirnar eru fallega brúnar.
Berið gleðina fram með fersku salati. Þessi elska er tilbúin í alla gleði. Fullkomið að hella hvítu eða rauðu í glas og hafa með.
Njótið alla leið í botn!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.