Sumarlegt, ferskt og gott kartöflusalat sem er gott með grillmatnum og þá sér í lagi með grilluðu fiskmeti en líka gott með kjöti.
Þetta salat tekur um hálftíma að útbúa. Ótrúlega gott og æðislegt að borða úti í garði eða í bústaðnum og algjörlega nauðsynlegt að útbúa þegar fyrsta kartöfluuppskera sumarsins lætur sjá sig.
INNIHALD:
- 750 gr kartöflur, best að nota smælki
- Smá ólífuolía
- 2 knippi af ferskum aspas
- 2-3 msk fersk mynta, söxuð
- 4 vorlaukar, skornir þunnt
- 1/2 lítill rauðlaukur, sneiddur þunnt
- 100g mulinn Fetaostur
- 12 myntulauf
DRESSING:
3 msk góð, mild ólífuolía
1tsk Dijon sinnep
Fínt rifinn börkur og safi úr einni sítrónu
Hitaðu ofninn í 200, skerðu kartöflurnar til helminga og settu í eldfast mót. Settu yfir ólífuolíu og blandaðu vel. Bakaðu kartöflurnar í 30 mínútur og hrærðu í af og til.
Berðu smá ólífuolíu á aspasinn og settu svo aspasinn í eldfasta mótið með kartöflunum. Bakaðu í 15 mínútur til viðbótar eða þar til bæði er orðið mjúkt að innan en örlítið stökkt að utan. Bara örlítið.
Settu heitar kartöflurnar í stóra skál með myntunni, vorlauk, rauðum lauk og feta og kryddaðu með salti og pipar.
Settu það sem á að fara í dressinguna í glerkrukku með loki og hristu vel saman. Helltu yfir salatið og blandaðu varlega.
Leyfðu þessu að standa í smá stund eða þar til kartöflurnar hafa dregið í sig það mesta úr dressingunni.
Berðu svo fram volgt eða við stofuhita og njóttu í botn með góðum vinum á góðri stund!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.