Ég er sérlega hrifin af súkkulaði, þá helst súkkulaðikökum. Það jafnast fátt við góða súkkulaðiköku og glas af ískaldri mjólk.
Þessi uppskrift er ansi góð að mínu mati, ég fékk hana hjá mömmu minni og mamma fékk hana hjá mömmu sinni svo hún hefur verið bökuð oft í minni fjölskyldu. Sérlega einföld og svakalega góð.
Mér finnst agalega fallegt að skreyta kökur, ég notaði stút frá Wilton 2 D til þess að skreyta þessa köku. Einföld súkkulaðikaka verður mun fallegri eftir smá skreytingar.
Rósavöndur skal það vera í þetta sinn. Ég mæli með að prófið þessa uppskrift og vona að þú og þínir njótið vel.
Kv, Eva Laufey
…
Mömmudraumur
Innihald
150 gr. Púðursykur
125 gr. Smjör
2 egg
260 gr. Hveiti
1 tsk. Matarsódi
1 tsk. Lyftiduft
½ tsk. Salt
40 gr. Kakó
2 dl. Mjólk
Aðferð…
Vinnið vel sykur og smjör. Setjið eitt og eitt egg í einu og blandið vel saman. Blandið þurrefnum og setjið saman við ásamt mjólkinni. Hellið í tvö jafn stór form og inn í ofn við 180°C í 20 – 22 mín.
Krem
500 gr. Flórsykur
60 gr. Kakó
1 egg
80 gr. Smjör
1 tsk. Vanilla extract (eða vanilludropar)
3-4 msk sterkt kaffi.
Bræðið smjör og blandið öllu saman þar til kremið verður orðið slétt og fínt. Smyrjið kreminu á milli og yfir kökuna.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.