Hvað er betra fyrir líðanina og heilsuna en fagur fiskur úr sjó, fullur af próteini og vítamínum? Í dag er þriðjudagur og ferskur fiskur kominn í borðin hjá fisksölum landsins… því er ljómandi góð hugmynd að kvöldmatnum.
Uppskriftin er fyrir fjóra, fengin hjá stelpunum í Yndisauka. Einkar girnileg uppskrift og við mælum þá sérstaklega með Dukkah frá þeim sem gerir ótal rétti aðeins girnilegri.
-Fyrir fjóra
- 900g steinbítur, roð og beinhreinsaður
- 1 askja kisuberjatómatar
- 1 stk lime
- 5 msk Havana Dukkah*
- 5 msk ólífuolía
- 5 lauf fersk basilika
- salt
Hellið helmingnum af olíunni í stórt elfast fat. Skerið fiskinn í hæfilega bita og raðið þeim í fatið.
Skerið tómatana í báta og raðið þeim á milli fiskbitanna. Skolið lime-ið vel og rífið börkinn af því á fínu rifjárni, skerið það svo í tvennt og kreistið safan í öðrum helmingnum yfir fiskinn og stráið berkinum yfir. Stráið svo Dukkahnu þar yfir og hellið restinni af olíunni yfir allt saman, saltið aðeins og skellið fatinu svo í ofninn. 10 mín við 185°c eða þar til fiskurinn er tilbúinn.
Við mælum með að rífa niður rótargrænmeti, snöggsteikja það á pönnu og bera það fram sem meðlæti.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.