Það fyrsta sem ég hugaði í morgun var… Hvað ef ég gæti fengið mér ótrúlega próteinríkar pönnukökur sem eru samt geðveikt góðar?
Hugsunin þótti mér svo spennandi að ég velti mér fram úr fyrr en siðlegt þykir hjá pjöttuðum bóhemum… skrönglaðist beint inn í eldhús, opnaði skápana og tók fram hráefnin.
INNIHALD
- 2 dl spelt
- 1/2 tsk vanillu stevía (eða annað sætuefni t.d. hrásykur eða banani eða agavesýróp – OG ATH má líka sleppa því að gera sætt af því próteinið og Hámarkið inniheldur sætuefni).
- 1 tsk lyftiduft
- 1 dl súkkulaði Weetabix
- 30 gr súkkulaðiprótein – Ég notaði 1 bréf af Ultra Loss Shake sem er jafnframt vítamínbætt
- 1 og hálf ferna HÁMARK (ca. 4 dl) með kaffi og karamellubragði, nú eða súkkulaðibragði auðvitað
- 2 msk matarolía (eða fljótandi kókosolía, ekki nota ólívuolíu)
- 1 egg
Byrjaði á að blanda saman þurrefnum… svona
Svo Hámarki, eggi og olíu… Fá barnið til að hræra mjög vel. Kveiktu á eldavélinni og hafðu hana á meðal hita. Ekki of háum (stilli á 4 á minni ‘old school’ helluvél).
Steikja á pönnu. Ég er svo heppin að eiga litla pönnukökupönnu sem steikir 4 í einu en auðvitað geturðu notað hvaða pönnu sem er og notað bara litla ausu eða svo í hverja pönnsu.
Þegar svona loftbólur myndast í pönnukökunni er tímabært að snúa henni á hina hliðina… steiktu þá í 1-3 min og taktu af pönnunni. Best er að stafla pönnsunum upp svo þær haldi hitanum, ef þú ert að gera margar skaltu breiða álpappír yfir diskinn.
Taraaa… klár í daginn með sykurlausar, ofur prótein og trefjaríkar SÚKKULAÐI pönnukökur! Ótrúlega góðar!!
Borðaðu þær með hnetusmjöri og sultu, sýrópi eða hverju sem þig lystir eða hentar þér og þínum lífstíl. Pönnukökurnar eru lágar í hitaeiningafjölda en meðlætið getur auðvitað hækkað það upp.
Líka hægt að frysta þær og setja í brauðristina á milli lota eða hafa með í nesti yfir daginn. Ef þú ert á LKL þá er bara að skipta speltinu út fyrir möndlumjöl, kókosmjöl eða annað sem þið notið.
Bon appetit!
Kveðja – Margrét próteinrófa
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.