Þessa einfalda “franska” er alltaf sígild og hentar við öll tækifæri. Sjúklegur unaður fer í gegnum um allan kroppinn þegar hún snertir bragðlaukana. Mæli með þessari alla leið.
Innihald
Aðferð
- Smjör og súkkulaði brætt í potti við lágan hita og gætið þess að láta alls ekki sjóða .
- Eggið og agavesýrópið þeytt mjög vel saman.
- Súkkulaðismjörið aðeins látið kólna og svo er því blandað varlega saman við eggjahræruna.
- Þá er speltinu blandað saman við með sleif.
- Sett í form og bakað við 175° í um 25-30 mín.
Kakan á að vera hrá í miðjunni. Þegar að kakan hefur kólnað er gott að strá sigtuðum flórsykri yfir.
Himnesk sæla sem gott er að bera fram með ferskum berjum, rjóma eða ís. Hún slær alltaf í gegn!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.