Á DÖGUNUM EIGNAÐIST ÉG ELDHÚSTÆKI SEM MIG HEFUR LANGAÐ Í ALLTOF LENGI. ÉG ER AÐ TALA UM NUTRIBULLET!
Þetta tæki er bara einum of mikil snilld! Það er svo þægilegt að setja grænmetið og ávextina beint ofan í glasið sem ég mun drekka úr. Það gerir fráganginn svo mikið fljótlegri og auðveldari.
Það sem mér finnst samt þægilegast við að notast við Nutribullet er að með því bý ég mér til drykk í hæfilegu magni fyrir einn. Ég á það nefninlega til að vita ekkert hvað ég á að setja mikið af hverju þegar ég útbý mér drykki í blandara, slumpa mig til og bý þá til alveg alltof mikið. En með Nutribullet þá fylli ég glasið að max línunni af grænmeti og ávöxtum og það er alveg hæfilegt magn.
Ég ákvað að búa mér til rauðan drykk sem er alveg ótrúlega góður og stútfullur af góðum næringarefnum
Uppskrift:
- 1 stór gulrót, flysjuð og skorin í 3 bita
- 1 lífrænt epli, kjarnhreinsað
- 1 cm engifer, flysjað
- 1 lúka hindber
Öllum hráefnunum er komið ofan í glasið og glasið fyllt af vatni að MAX línunni. Hnífnum er skrúfað á glasið, glasinu er hvolft á tækið og það sett í gang. Það tekur mjög stuttan tíma fyrir öll hráefnin að verða að vökva, ca. 20-30 sek. Glasið er þá tekið af tækinu, hnífurinn skrúfaður af og drykkurinn er tilbúinn!
Hægt er að drekka drykkinn beint úr Nutribullet glasinu og geri ég það nú yfirleitt sjálf. Það er líka algjör snilld að það fylgir með lok með stúttappa sem er mjög þægilegt þegar ég er að drekka drykkinn á ferðinni. Ég nota það mjög mikið. En þar sem ég var að taka myndir af ferlinu fyrir ykkur þá ákvað ég að setja drykkinn í fallegt kokteilglas í þetta skiptið.
Linda fæddist þann 23. október árið 1988. Í dag er hún mamma í sambúð og með geysilegan áhuga á innanhúshönnun en áhuginn vaknaði þegar hún keypti fokhelt hús árið 2013. Verandi lífefnafræðingur hefur Linda líka mikinn áhuga á snyrtivörum og virkni þeirra. Linda er líka mikill bakari en hún bakar til að fá útrás fyrir sköpunargleðina og nýtur þess að taka fallegar myndir af afrakstrinum. Allar myndir í matarbloggfærslum eru því teknar af Lindu sjálfri og þú getur lesið meira af efni frá henni bæði hér undir notendanafninu og á mondlur.com