Fyrir þig sem ert í eftirrétta hugleðingum er þessi piparmyntu brownie skotheld!
Ég fékk þessa uppskrift frá nágrannakonu minni sem er algjör kökusnillingur en hún heldur úti blogginu gotteri.is.
Uppskrift:
- Brownie:
- 150 g suðusúkkulaði
- 100 g smjör
- 4 egg við stofuhita
- 2 bollar sykur
- 1 tsk vanilludropar
- 1 1/4 bolli hveiti
- 1/2 tsk lyftiduft
Hitaðu ofninn í 180°C. Bræddu smjörið og súkkulaðið yfir vatnsbaði. Hrærðu vel saman eggjum og sykri, settu svo vanilludropana út í. Blandaðu súkkulaðiblöndunni saman við með því að hella út í eggjablönduna í mjórri bunu. Bættu því næst út í hveiti og lyftidufti, hrærðu rólega saman við. Settu smjörpappír í um það bil 20×30 cm form og helltu deiginu ofan í. Bakað í 20-30 mín.
- Piparmyntukrem:
- 4 msk mjúkt smjör (ef það er hart skerðu það þá niður með ostaskera, þá verður það mjúkt strax)
- 2 bollar flórsykur
- 1 1/2 tsk piparmyntudropar
- Grænn matarlitur
Hrærðu fyrst smjörið þangað það byrjar að límast við hliðar skálarinnar og aðeins orðið flöffí. Skafðu smjörið niður af hliðunum með sleikju og settu flórsykurinn útí, hrærðu mjög hægt til að byrja með. Settu piparmyntudropana úti ásamt græna matarlitnum, byrja á að setja lítið og svo meira ef þarf. Settu kremið á kökuna þegar hún hefur kólnað. Skerðu hana svo niður í hæfilega stóra bita.
- Súkkulaðihjúpur:
- 200 g suðusúkkulaði
- 6 msk smjör
Bræddu súkkulaðið og smjörið saman yfir vatnsbaði. Settu súkkulaðið vel yfir hvern kökubita, sérstaklega girnilegt þegar það lekur aðeins niður með hliðunum. Skreyttu svo hvern bita með After eight súkkulaði.
Njótið vel!
Linda fæddist þann 23. október árið 1988. Í dag er hún mamma í sambúð og með geysilegan áhuga á innanhúshönnun en áhuginn vaknaði þegar hún keypti fokhelt hús árið 2013. Verandi lífefnafræðingur hefur Linda líka mikinn áhuga á snyrtivörum og virkni þeirra. Linda er líka mikill bakari en hún bakar til að fá útrás fyrir sköpunargleðina og nýtur þess að taka fallegar myndir af afrakstrinum. Allar myndir í matarbloggfærslum eru því teknar af Lindu sjálfri og þú getur lesið meira af efni frá henni bæði hér undir notendanafninu og á mondlur.com