Hún er í dulargervi þessi. Margir myndu jafnvel halda að þetta væri bara hversdagsleg skúffukaka… Já, hún lætur lítið yfir sér en er svo bara alveg stórkostlega góð!
250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
350 g sykur
250 g smjör
75 g sykurpúðar
30 g kakó
160 ml Pepsi
2 stk egg
100 ml súrmjólk
2 tsk vanilludroparAðferð:
- Hveiti, lyftiduft og sykur blandað saman í skál og sett til hliðar.
- Smjör og sykurpúðar brætt saman við vægan hita. Þá er kakói bætt út í sykurpúðabræðinginn og þar á eftir pepsíið.
- Egg, súrmjólk og vanilludropar hrærðir vel saman í hrærivél.
- Þá er þurrefnunum bætt saman við eggjablönduna ásamt smjörblöndunni.
- Bakað við 175°C i 35 mín.Kakan kæld smá áður en kremið er sett yfir.
Pepsikrem:
85 g smjör
2 msk kakó
40 ml Pepsi
300 g flórsykur
1 tsk vanilludropar
Aðferð:
Smjör brætt í potti, kakó og Pepsi bætt út í og hrært vel saman. Að lokum er flórsykur ásamt vanilludropum sett saman við. Sett yfir kökuna og skreytt að vild með t.d. kókosmjöli, karmellukúlum,
Uppskriftin og myndirnar koma af vefnum mömmur.is – þar er fullt af góðu efni!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.