Ég ætla að kynna besta og einfaldasta brauði í heimi. Ég kalla það pabbabrauð af því þetta brauð hefur pabbi minn galdrað ítrekað fram úr erminni síðan ég var krakki.
Bara ilmurinn af þessu brauði flytur mig aftur heim á æskuheimilið þar sem ég sit og drekk kakó, gæði mér á brauði og hlusta á pabba segja verulega slaka brandara. Sem ég hlæ alltaf að. Af því að mér finnst pabbi minn ógeðslega fyndinn.
Pabbabrauð
3 og 1/2 bolli hveiti
3 bollar af heilhveiti
2 matskeiðar sykur
5 teskeiðar lyftiduft
1 teskeið salt
700 ml volg mjólk
Þessu er öllu hrært saman og skipt í tvö form. Brauðin fara inn í kaldan ofn á 200° í 30 mínútur. Síðan er slökkt á ofninum og brauðin látin dvelja í honum í sirka 20 mínútur í viðbót.
Mmm. Ég finn lyktina við það eitt að horfa á þessar myndir. Hún er dásamleg get ég sagt ykkur. Enda fátt sem ilmar betur en nýbakað brauð.
Guðdómlega gott með smjöri og osti. Alveg guðdómlega! Ein sneið og heitur kakóbolli – ég slæ ekki höndinni á móti slíku í þessum kulda.
Guðrún Veiga er mannfræðingur að mennt. Týpískt naut, kann vel að meta veraldleg gæði og þrjósk með eindæmum, fagurkeri og eyðslukló.
Naglalökk eru hennar helsti veikleiki og líkamsrækt stundar hún ekki en viðheldur brennslunni með óhóflegri kaffidrykkju.