Þessi kaka er ótrúlega fljótleg í framreiðslu því hana þarf ekki að baka. Það eina sem þarf hér er smá skilvirkni og pláss í ísskápnum eða öruggur kælistaður úti á svölum…
Kaka innihald
330 g Rice crispies
20 stk Oreo kexkökur grófsaxaðar
120 g smjör
300 g dökkt súkkulaði
7 msk síróp
20 stk Oreo kexkökur grófsaxaðar
120 g smjör
300 g dökkt súkkulaði
7 msk síróp
Súkkulaði ofan á köku
100 g dökkt súkkulaði
1 msk síróp
30 g smjör
1 msk síróp
30 g smjör
• Brætt saman í potti yfir meðalháum hita þegar kakan er sett saman
Smjörkrem
250 g smjör við stofuhita
1 pk flórsykur (500 g)
4 tsk vanilludropar (eða það bragð sem þú vilt9
2 msk mjólk (2-4 msk)Brætt saman í potti yfir meðalháum hita þegar kakan er sett saman.
1 pk flórsykur (500 g)
4 tsk vanilludropar (eða það bragð sem þú vilt9
2 msk mjólk (2-4 msk)Brætt saman í potti yfir meðalháum hita þegar kakan er sett saman.
- Bræðið saman súkkulaði, smjör og síróp í potti yfir meðal háum hita og hrærið vel allan tímann.
- Setjið Rice krispies og saxaðar oreo kexkökur í skál og hellið súkkulaðiblöndunni saman við og hrærið þar til allt hefur blandast vel saman.
- Smyrjið tvö bökunarform að innan og þjappið Rice krispies blöndunni vel ofan í formin og kælið í lágmark 30 mín.
Skraut: Sprinkles.
- Hrærið smjörið í hrærivélinni þangað til það er orðið mjúkt og létt.
- Bætið smá og smá af flórsykrinum saman við og hrærið vel á milli.
- Bætið því næst vanilludropunum saman við og mjólkinni. Ef ykkur finnst kremið of þykkt bætið þið við mjólk og ef ykkur finnst það of þunnt bætið þá við flórsykri. Mikilvægt er að hræra kremið mjög vel þegar maður ætlar að skreyta kökur því þá losnum við við alla smjörkekkina og kremið verður með fallega áferð. Því lengur sem þið hrærið því betra verður kremið.
AÐFERÐ
- Takið botnana úr formunum og setjið á disk, smyrjið smjörkreminu ofan á annan botninn og setjið þann seinni ofan á. Það þarf ekki að setja allt kremið á milli botnanna og gaman er að eiga smá afgang til að skreyta kökuna af vild.
- Bræðið súkkulaðið saman í potti yfir meðalháum hita (sjá aðferð að ofan). Passið að súkkulaðið sé ekki mjög heitt þegar því er hellt yfir kökuna svo það bráðni ekki. Hellið súkkulaðinu yfir kökuna og látið það leka niður hliðarnar. Skreytið með sprinkles eða öðru skrauti af vild. Hægt er að nýta restina af smjörkreminu til þess að skreyta kökuna, t.d. að skrifa nafn barnsins eða aldur þess á kökuna.
Svo er bara að slá upp góðu krakkapartý með skemmtilegri tónlist og hæfilega ærandi hávaða!
Höfundur uppskriftarinnar er Thelma Þorbergsdóttir sem bloggar hjá Gott í Matinn.is.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.