Sætar kartöflur eru ekki bara bragðgóðar og hollar einnig eru þær ótrúlega fallegar þegar þær eru komnar á diskinn.
Þessi réttur er fullkominn með kjúkling, kalkún eða öllu því sem huganum girnist.
…mér finnst hann líka ótrúlega góður með salati.
INNIHALD
3-4 sætarkartöflur
1 búnt vorlaukur
3-4 sm ferskur engifer
matreiðslurjómi
AÐFERÐ
Þú skerð kartöflur í skífur og setur í eldfast mót, ofan á það fer niðurskorinn vorlaukur og smátt skorin engifer.
Svo seturðu kartöflur ofan á þetta aftur engifer og vorlauk, koll af kolli (eins og þú sért að gera lasagne).
Í restina seturu botnfylli af matreiðslurjóma, hann má alls ekki flæða yfir allar kartöflurnar, bara rétt í botninn.
Inn í ofn í 30-40 mín við ca 200 gráður.
…bragðast eins og besta konfekt!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.