Æðislega ljúffengur kjúklingaréttur sem öllum líkar. Kjúklingakjöti er velt upp úr muldum nachosflögum sem flestir eru sólgnir í. Sniðugt er að skera kjúklinginn í enn minni bita en sýnt er á myndinni, þræða hann síðan að lokinni eldun á flotta pinna og bera þannig fram.
INNIHALD
600 g kjúklingalundir eða bringur
1 dl hveiti
salt, pipar og paprikuduft að smekk
2 egg
170 g nachosflögur, muldar smátt.
AÐFERÐ
Hitið ofninn í 230 gráður.
Skerið kjúklingakjötið í hæfilega bita. Kryddið hveitið með salti, pipar og paprikudufti og setjið í skál. Hrærið út eggin í annarri skál og setjið muldu nachosflögurnar í þá þriðju. Byrjið á því að velta kjúklingabitunum upp úr hveitinu þannig að þeir verði jafnt þaktir. Dýfið síðan ofan í eggin og látið renna vel af þeim áður en þeim er svo velt upp úr nachosflögunum. Raðið á bökunarplötu sem þakin hefur verið bökunarpappír. Bakið í um 15 mínútur, fer eftir stærð bitanna, aðeins skemur ef þeir eru mjög litlir. Snúið bitunum við þegar eldunartíminn er hálfnaður þannig að þeir gyllist jafnt báðum megin. Berið fram með salsasósu og sýrðum rjóma.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.