Algjör negla þessi kjúklingasúpa! Það er helst að maður klikki á því að gera nóg af henni í hvert sinn sem ég elda hana því aldrei er dropi eftir í pottinum.
Og það sem meira er hún er afar einföld í undirbúningi. Meðlætið leikur stórt hlutverk en ætlast er til að það sé borið fram í litlum skálum og að hver og einn strái því yfir sína súpuskál að smekk.
Mexíkósk kjúklingasúpa
- 400 g kjúklingur eldaður, saxaður eða niðurrifinn
- 1 msk. ólífuolía
- 1 rauðlaukur, saxaður
- 4 hvítlauksrif, söxuð eða marin
- 450 g salsa- eða tacosósa, má líka nota niðursoðna tómata
- 2 dl chillísósa úr flösku
- 1 lítri kjúklingasoð
- 1 tsk. paprikuduft og/eða 1 tsk. chillíduft
- salt og pipar, að smekk
Mýkið lauk og hvítlauk í ólífuolíu í potti við meðalhita. Bætið salsa- eða tacosósu í ásamt chillísósu.
Látið malla smá stund. Maukið þá súpuna með töfrasprota eða í matvinnsluvél þar til slétt. (Má sleppa þvi að mauka en passið þá að saxa laukinn mjög smátt). Bætið síðan kjúkling og soði saman við og látið suðuna aðeins koma upp. Kryddið að vild og smakkið til þar til hæfilega sterk.
Meðlæti, stráð yfir súpu að smekk:
- ostur, rifinn
- ferskt kóríander, saxað
- nachosflögur, muldar
- límónubátar, til að kreista safa yfir súpuna
Þessi uppskrift birtist fyrst í bók minni Partíréttir sem kom út í vor. HÉR er Facebooksíða Partírétta.
Njótið!
Rósa starfaði um árabil sem blaða- og fréttamaður lengst af hjá fréttastofu Stöðvar tvö og Bylgjunnar. Hún hefur skrifað um mat og matargerð í ýmis blöð og tímarit, þar af í rúman áratug fyrir Gestgjafann. Rósa gaf út sína fyrstu matreiðslubók, Eldað af lífi og sál, haustið 2009. Nú starfar Rósa við ritstörf hjá Bókafélaginu og er bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.