Ídýfur undir mexíkóskum áhrifum eru alltaf sérlega vinsælar, ekki síst meðal unga fólksins sem hreinlega elskar allt sem mexíkóskt er í matargerðinni. Falleg í skál þessi og enn betri í munni – steinliggur í partíinu eða fyrir kósíkvöldið.
- 100 g guacamole
- 1 dós nýrnabaunir, niðursoðnar
- 1 lítill rauðlaukur, smátt saxaður
- 150 g sýrður rjómi eða grísk jógúrt
- 180 g salsasósa
- 1 dl blaðlaukur eða vorlaukur, saxaður
- handfylli ferskt kóríander
- tortillaflögur
Útbúið guacamole samkvæmt uppskrift hér að neðan. Setjið í botninn á fallegri glerskál. Maukið síðan nýrnabaunirnar (fást líka maukaðar) og blandið saman við saxaðan rauðlauk. Dreifið því yfir guacamole. Setjið því næst sýrðan rjóma ofan á og salsasósu. Stráið blaðlauk og kóríander þar ofan á og berið fram með tortillaflögum.
Guacamole
- 2 avókadó, vel þroskuð
- ½ rauðlaukur, smátt saxaður (má nota annan lauk)
- 1 grænt chillí, saxað örsmátt
- 2-4 hvítlauksrif, marin (magnið fer eftir smekk)
- 2 tómatar, fræ- og kjarnhreinsaðir, saxaðir smátt
- ferskt kóríander, að smekk (má sleppa)
- 3 msk. límónu- eða sítrónusafi
- salt á hnífsoddi
Maukið avókadóið og blandið öðru hráefni saman við. Berið fram strax.
Njótið í góðra vina hópi á góðu föstudags eða laugardagskvöldi!
Rósa starfaði um árabil sem blaða- og fréttamaður lengst af hjá fréttastofu Stöðvar tvö og Bylgjunnar. Hún hefur skrifað um mat og matargerð í ýmis blöð og tímarit, þar af í rúman áratug fyrir Gestgjafann. Rósa gaf út sína fyrstu matreiðslubók, Eldað af lífi og sál, haustið 2009. Nú starfar Rósa við ritstörf hjá Bókafélaginu og er bæjarfulltrúi í Hafnarfirði.