Þar sem nýtt ár er gengið í garð passar að vera fersk með hnitmiðuð markmið og hafa heilsuna i fyrsta sæti.
Mér hefur tekið svona líka ljómandi vel upp þessa fyrstu daga, full af orku og til í að gera enn betur varðandi hreyfingu og hollt mataræði.
Maturinn skiptir svo miklu máli til að maður hafi orku og áhuga á öllum heimsins skemmtilegu hlutum, vinnunni og hinu daglega lífi.
Ég ætla að vanda mig á hverjum degi með næringu og hreyfingu, já ætla að toppa sjálfa mig, 48 ára kvennsuna – þó fyrr hefði verið!
Það er gaman að bera ábyrgð á heilsunni og getað með heilum hug miðlað til annarra.
Melónuskál með ferskum ávöxtum
- 1dós sýrður rjómi
- 1/2 appelsina
- nokkur falleg blá vinber
- ávextirhálf melóna skafin að innan (notaði kjötið úr henni i boozt)
- 1 rautt epli
- dass af Agave sýrópi eða nokkra steviu dropa
- 1 meðalstór banani
Aðferð:
Ávextirnir smátt saxaðir og blandaðir vel við sýrða rjómann, einnig notaðir til skreytinga i restina með nokkrum valhnetum.
Dóra elskar að föndra við snittugerð en matur hefur alltaf haft mikil áhrif á hennar líf. Svo mikil að Dóra byrjar flesta morgna á að hugsa um hvað eigi að vera gott í kvöldmatinn. Hún býr á Seltjarnarnesi, á tvær æðislegar stelpur og sætasta golfara í heimi (að ólöstuðum okkar). Dóra lærði til lyfjatæknis árið 2001 en áhugamál hennar snúast um allt sem tengist mat, hreyfingu, dansi og útivist.