Þessi ljómandi fíni smoothie er bráðnauðsynlegur eftir ljúfa óveðursviku. Það er nefnilega eitthvað við þetta veður sem límir mann við sófasettið með aðra höndina í snakkpokanum og súkkulaðislefuna í munnvikinu.
Svo ekki sé minnst á rauðvínið. Það er auðvitað fullkomlega réttlætanlegt að fá sér eins og eitt glas af því meðfram átinu. Og þó þau væru tvö! En helginni er lokið. Út með rauðvínið. Inn með detoxið!
- Í þennan hreinsunardrykk fer eftirfarandi:
- 1 epli
- 1/2 gúrka
- 2 stilkar sellerí
- safi úr einni sítrónu
- nokkur frosin hindber
- góður bútur af engifer
- 1 rauðrófa
- 1/2 bolli vatn
Fljótlegt, nærandi og hreinsandi! Ég mæli eindregið með þessum.
Guðrún Veiga er mannfræðingur að mennt. Týpískt naut, kann vel að meta veraldleg gæði og þrjósk með eindæmum, fagurkeri og eyðslukló.
Naglalökk eru hennar helsti veikleiki og líkamsrækt stundar hún ekki en viðheldur brennslunni með óhóflegri kaffidrykkju.