Tímaritið Oxygen birtir í þessum mánuði fullt af uppskriftum að sósum og salatdressingum sem innihalda miklu færri hitaeiningar en fyrirmyndirnar en bragðast engu síður.
Hér er uppskrift að Sesarsalat dressingu sem inniheldur umtalsvert færri hitaeiningar en hin afar hitaeiningaríka sósa sem við erum vanar.
Þessi endist í heilan mánuð ef þú setur hana í krukku inn í ísskáp.
Mundu bara að merkja dagsetninguna og njóta með afar góðri samvisku.
- 110 gr létt, stinnt tofu
- 2 hvítlauksrif, marin
- 1/4 bolli af vatni
- safi úr einni sítrónu
- 1 matskeið parmesan ostur, ferskur og rifinn
- 2 ansjósur
- 1 matskeið rauðvínsedik
- 1 matskeið Dijon sinnep
- 1/2 teskeið svartur pipar, mulinn
AÐFERÐ: Blandaðu öllu saman í matvinnsluvél eða blender. Njóttu með góðu salati og í góðum félagsskap.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.