Hvernig væri að prófa laxaborgara fljótlega? Þeir eru umtalsvert hollari en þessir hefðbundnu enda lax og lárpera spriklandi í hollum næringarefnum sem kroppurinn þinn á eftir að elska.
Innihald
500 g laxaflak, bein- og roðlaust, skorið í bita
1 stk egg
½ dl graslaukur, finsaxaður
2 msk repjuolía
4 stk gróf hamborgarabrauð eða 8 sneiðar af grófu súrdeigsbrauði
50 g ferskt salat
2 stk tómatar
1 stk lárpera
AÐFERÐ
1. Setjið fyrstu fjögur hráefnin í matvinnsluvél eða maukið gróft með töfrasprota.
2. Mótið fjóra hamborgara úr farsinu sem eru u.þ.b. 1 1/2 cm þykkir.
3. Steikið á pönnu við meðalhita í u.þ.b. 5 mínútur.
4. Ristið brauðin og leggið salat og wasabi-eplasaósu ofan á brauðbotninn. Setjið síðan laxaborgarann þar ofan á og meiri sósu. Toppið með tómamötum, lárperu og sósu.
Wasabi sósa
1 stk lítið grænt epli, skorið í bita
1 ds sýrður rjómi 10%
• fínrífinn börkur af 1 límónu
1 tsk eða meira af wasabimauki
• sjávarsalt og svartur pipar
1. Maukið eplið í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Bætið hinum hráefnunum saman við. Smakkið til með salti, pipar og wasabi ef vill.
Birt með leyfi frá Ernu Sverris sem birtir fleiri uppskriftir á www.gottimatinn.is
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.