Þetta salat er svo unaðslega gott. Hrein hollusta með fullt fullt af vítamínum – gott eitt og sér einnig með mat!
INNIHALD
- 2 vel þroskuð lárpera
- 2 stórir þroskaðir tómatar
- 2 msk ferskur sítrónusafi
- 3 msk. hakkað kóriander
- salt og pipar eftir smekk
AÐFERÐ
Skerið lárperu og tómat í frekar grófa bita. Setjið sítrónu, kóríander út á salatið og blandið vel. Saltið og piprið eftir smekk.
Þroskað, óeldað avocado, eða lárpera, er stútfull af lifandi ensímum og auðmeltanlegum próteinum og kolvetnum.
Þessir kostir gera það að verkum að avocado er efst á lista yfir auðmeltanlegustu fæðutegundirnar sem innihalda svo hátt magn próteina og fitusýra.
Njóta njóta í botn!!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.