Nú þegar tekur að rökkva og kuldinn klípur kinn er nauðsynlegt að borða kjötmeti til að kynda kerfið, gefa okkur kraft til að sinna öllum heimsins verkefnum og gleðja okkur þegar skammdegið bankar uppá með sínum þunga hrammi.
Þessi einfaldi vetraréttur ætti ekki að velkjast fyrir neinum, sáraeinfaldur og einstaklega mikið hnossgæti.
Lambalund með döðlum, beikoni, jarðaberjum og piparostasósu, flauelsmjúk lund sem fær hjartað til að slá hraðar og augun glennast upp af fegurðinni, þetta er matur i sparilegri kantinum, kraftmikill og sneisafullur af vitamínum.
Sirka 7-800 gr fyrir fjóra fullorðna
AÐFERÐ
Lundirnar eru settar i mareningu yfir sólarhring, pressaður hvítlaukur, 4 msk ólífu olía, salt og pipar.
Lundirnar eru svo eldaðar á vægum hita hvort sem er á grilli eða ofni. Í sirka 5 mínútur á grilli en 20 mínútur i heitum ofni. Það þarf að passa að fylgjast vel með fer svolitið eftir ofnum hverju sinni.
Þegar sirka 7 mínútur eru eftir af eldunartímanum set ég sætar kartöflur í teningum (eldaðar) yfir kjötið og strái beikonstrimlum forelduðum yfir svo og söxuðum 4-5 döðlubitum.
Þetta er sett á fallegan disk með spínati, brokkolí, ferskum jarðarberjum og dassi af piparostasósu.
Piparostasósa
- Smjörklípa sett i botn með piparosta smurosti
- 1. msk sætt sinnep
- 1. grænmetisteningur
- 1. msk vatn, dass af mjólk og að lokum dl rjómi.
- Hrært til þar til sósan er meðalþykk.
Berið fram með bros á vör, dinnertónlist, kertaljósi og góðum drykk.
Dóra elskar að föndra við snittugerð en matur hefur alltaf haft mikil áhrif á hennar líf. Svo mikil að Dóra byrjar flesta morgna á að hugsa um hvað eigi að vera gott í kvöldmatinn. Hún býr á Seltjarnarnesi, á tvær æðislegar stelpur og sætasta golfara í heimi (að ólöstuðum okkar). Dóra lærði til lyfjatæknis árið 2001 en áhugamál hennar snúast um allt sem tengist mat, hreyfingu, dansi og útivist.