Góð byrjun á góðum degi er að fá sér holla næringu í kroppinn. Miklu meiri líkur á að þú haldir jöfnum blóðsykri og minni að þú nælir þér í sætindi, þannig að líðan þín verður stórkostleg. Þessi drykkur er hreint út sagt himneskur.
INNIHALD
- 2 bollar jarðaber, frosin
- 1 banani
- 2 tsk chia fræ
- 1 msk hampfræ
- möndlumjólk, magn að þínum smekk
UNDIRBÚNINGUR
Allt sett saman í blandara og drukkið.
Hampfræ: Flokkast sem ofurfæða. Þau innihalda mikið af próteinum og í þeim er Omega 3, 6 og 9, magnesíum, járn, zínk og kalíum.
Chia fræ: Eru mjög næringarík, orkugefandi, draga úr sætindalöngun og eru auðmeltanleg.
Þetta er orkumikill og góður drykkur sem einfalt og fljótlegt er að útbúa og endist fram að hádegi sem máltíð með einum ávexti í millimál.
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.