Flestir myndu ekki hafa salat í kvöldmatinn á tyllidögum, enda yfirlýstur heilsuréttur með tilheyrandi andvarpi. Þetta salat er hins vegar svo gott að það er vel við hæfi að spara það fram á laugardagskvöld og njóta þess innilega – svo gott er það.
Fyrir 3-4
INNIHALD
Salatið
- 1 poki af spínati
- 1/2 gúrka skorin í litla bita
- 1 pakki kokteiltómatar, skornir í tvennt
- 1/2 rauðlaukur, saxaður smátt
- 2 dl af kúskús
- 4 marineraðar kjúklingabringur – steiktar eða grillaðar og skornar í bita
Handfylli af þurristuðum, ósöltuðum kasjúhnetum
Dressing
- 1 og 1/2 dl af sítrónusafa
- 1 dl ólívuolía
- 1 dl tahini (t.d frá Himnesk Hollusta)
- 2 og 1/2 msk. hunang
- 3 hvítlauksgeirar, marðir
- 1 tsk. salt
- 1/2 tsk. svartur pipar
AÐFERÐ
Salat
Grænmetið skorið og því blandað saman. Kjúklingur steiktur eða grillaður, skorinn í bita og bætt við. Kúskús eldað samkvæmt leiðbeiningum og sett út í (undirrituð bætir við klípu af smjöri og blandar við kúskúsið þegar það hefur dregið í sig allan vökvann). Öllu er síðan blandað vel saman.
Marinering fyrir kjúkling
Heldur frjálslega má fara í marineringunni. Gott er að blanda saman sítrónusafa, salti, pipar, örlítið af cayenne pipar, hvítlauk og einhverju góðu kjúklingakryddi.
Best er að láta kjúklinginn liggja í marineringu í a.m.k. 1 klst.
Dressing
Blandið öllum hráefnum saman og þeytið í blandara eða með töfrasprota. Bragðbætið síðan með salti og pipar. Hér er gott að prufa sig áfram með sítrónusafann og hunangið. Misjafnt er hvort fólk sækist eftir súrari útgáfu með meira af sítrónusafa, eða sætari útgáfu með auknu magni af hunangi. Hvoru tveggja er yndislega gott og passar vel við salatið.
Þurristið ósaltaðar kasjúhnetur og dreifið yfir salatið. Þetta salat er ómótstæðilega gott og er sniðugt að gera aukalega af dressingunni því borðgestir munu vafalaust vilja laumast í ábót.
Brakandi kalt hvítvínsglas í samfloti við þetta geggjaða kjúklingasalat er jafnframt ávísun á góða kvöldstund.
Njótið vel!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.