Fínasti mánudagsmatur! Bragðgóður og einfaldur kjúklingapottréttur með grænmeti og grjónum. Hollt og ofsalega gott fyrir bæði bragð og líkamann sem elskar svona hollstu.
Þó listinn af innihaldsefnum sé hér langur er mjög auðvelt að gera þennan rétt. Kryddin sem gefin eru upp eru krydd sem ættu að vera til í öllum kryddskápum og ef þú átt þau ekki, þá muntu njóta þess að eiga þau til góða. Athugaðu líka að endingartími krydda er mjög langur svo lengi sem þau eru geymd í lokuðu rými og ekki í miklum hita eða kulda.
INNIHALD
- 3 bein- og skinnlausar kjúklingabringur
- 2 bollar vatn (500 ml)
- 2 msk grænmetiskraftur, lífrænn
- 1 laukur, fínsaxaður
- 1 rauðlaukur, fínsaxaður
- 2 flöskur af Sollu tómötum
- 400 ml vatn
- 1-2 sætar kartöflur, skornar í litla bita
- 3 stórar gulrætur, sneiddar
- 1 rauð paprika, skorin í bita
- bolli ferskar ertur (gott að kaupa frosnar)
- 4 hvítlauksrif, smátt saxað
- 1/2 teskeið rósmarín,ferskt eða þurrkað
- 1/2 tsk kóríander
- 1/4 tsk cayenne pipar
- 1/4 tsk basilika
- 1/4 tsk timjan
- 1/2 tsk oregano
- 1/4 tsk nýmalaður svartur pipar
- 1 tsk sjávarsalt
11/2 bolli ósoðin hýðishrísgrjón
Gott er að sjóða hrísgrjónin tímanlega en leiðbeiningar um eldun eru á pakkanum. Svo er það bara að steikja bringurnar í bitum í heilsugrilli eða á pönnu og geyma til hliðar.
Sollu tómatar og vatn sett í pott og þegar það fer að hitna þá bæta við grænmetinu og kryddinu og láta sjóða í 25 mín. Bætið síðan við kjúklingabringum og hrísgrjónum og látið sjóða áfram í 10 mín. Borið fram með grænu salati með nóg af klettasalati og öðru ljúfmeti jarðar.
Njótið!
Guðbjörg er iþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands. Hún hefur verið í líkamsræktarbransanum frá því árið 1989. Alltaf tilbúin að taka að sér krefjandi verkefni. Haldið ýmis þjálfaranámskeið fyrir þolfimikennara og einkaþjálfara auk þess að vera stundakennari við HR íþróttafræði. Undanfarin 19 ár hefur hún starfað með Agústu Johnson en nú hefur hún stofnað sitt eigið fyrirtæki, G fit heilsurækt og elskar að taka þátt í vellíðan fólks og upplifa árangur í líkamsrækt. Guðbjörg á skilningsríkan eiginmann og þrjú yndisleg börn.