Við ákváðum að búa til súpu fulla af gulrótum, en samt nógu ríka og bragðmikla til þess að gleyma því að maður sé að borða grænmeti. Nan brauð gera svo allt miklu betra, það er bara eitthvað við þetta indverska steikta brauð sem lætur manni líða vel. Súpa og nan brauð = fullkominn þægindamatur.
Byrjað er á að útbúa deigið fyrir nan-brauðið þar sem það þarf tíma til að hefast. Á meðan það hefast er súpan útbúin. Einfalt og rosalega gott!
Nan-brauð
- 1,5 dl volgt vatn
- 2 tsk sykur
- 2 tsk þurrger
- 4 dl hveiti
- 1/2 tsk salt
- 3 msk brætt smjör
- 2 msk hreint jógúrt
- Garam masala
- Sjávar salt
Blandið sykri og geri saman við volga vatnið og látið standa í smá stund. Blandið saman hveiti, salti, bræddu smjöri, jógúrti og gerblöndunni. Látið standa til að hefast í 30 mín. Skiptið deiginu í 6 hluta og fletjið hvern hluta fyrir sig út og kryddið með garam masala og salti. Steikið svo brauðið á pönnu þangað til þangað til gullin brúnt.
Indversk kjúklingasúpa
- 2 msk ólífuolía
- 1 shallot laukur eða venjulegur
- 1 tsk cumin krydd
- 1/2 tsk cayenne pipar
- 1 tsk paprikukrydd
- 1 tsk karrý
- 800 g gulrætur, flysjaðar og niðurskornar
- 600 g kjúklingabringur, skornar í hæfilega bita
- 1 l kjúklingasoð eða 1 l vatn með þremur kjúklingakraftskubbum.
- 1 dós (400 ml) kókosmjólk
- Kóríander
Steikið lauk og gulrætur með ólífuolíu þangað til laukurinn er orðinn glær. Bætið við kryddum og steikið í smá stund. Hellið kjúklingasoðinu yfir og sjóðið þangað til gulræturnar byrja að mýkjast. Maukið súpuna með töfrasprota þangað til súpan er silkimjúk og kekklaus. Skerið kjúklingabringurnar í hæfilega stóra bita og steikið þá á annari pönnu.
Setjið kjúklingabitana útí súpuna ásamt kókosmjólkinni og látið suðuna koma upp. Stráið kóríander yfir og berið súpuna fram.
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.