Humarsúpa er hinn fullkomni forréttur á undan steikinni. Mild, bragðgóð og ekta hátíðarmatur sem við borðum yfirleitt ekki til hversdags…
Hér er einstaklega ljúffeng humarsúpa sem gaman er að útbúa í rólegheitunum, helst yfir spjalli. Berið fram með góðu brauði og enn betra hvítvíni í félagsskap þeirra sem þú heldur mest upp á.
Þú þarft… slatta af innihaldsefnum en margt gæti leynst í skúffunum svo ekki panikka.
• cayenne-pipar á hnífsoddi
• maizena-mjöl til þykkingar ef vill
• salt og pipar
1 kg humarhalar í skel
1 laukur
3 hvítlauksrif
1 msk. smjör
1 msk. ólífuolía
1 tsk. karrí
½ tsk. paprikuduft
1 stk. stjörnuanís (1-2 stk. eða má sleppa)
1 msk. tómatþykkni (pureé)
1½ lítri vatn1
1½ msk. grænmetiskraftur
1 msk. olía til steikingar
100 ml (eða góð skvetta) af koníaki eða brandíi (má sleppa)
250 ml matreiðslurjómi
150 150 ml rjómi
Skelflettið humarhalana og fjarlægið görnina. Saxið laukinn og hvítlaukinn.
Hitið smjör og olíu í potti og brúnið skelina vel.
Bætið þá lauknum og hvítlauknum út í og svo karríi, paprikudufti, cayenne-pipar, anís og tómatþykkni.
Brúnið áfram í 1–3 mínútur. Hellið þá vatninu í pottinn og látið suðuna koma upp. Látið sjóða niður við lágan hita í opnum potti þar til u.þ.b. helmingur er eftir. Bætið þá grænmetiskraftinum út í. Sigtið soðið og geymið.
Takið annan pott og hitið vel. Setjið olíu í hann og snöggsteikið humarhalana. Hellið koníakinu yfir og því næst humarsoðinu. Hitið að suðu og setjið matreiðslurjómann út í. Bragðbætið með salti og pipar. Einnig getur þurft að bæta við smákrafti. Þykkið með maizena-mjöli ef vill.
Léttþeytið rjómann, ausið súpunni á diska og setjið eina skeið af rjómanum á miðjuna á hverjum diski. Skreytið t.d. með timían eða malið svartan pipar yfir.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.