Þetta salat er frábært á brauð eða kex, ótrúlega hollt og sjúklega gott. Ekki er verra að þú getur borðað það með góðri samvisku.
- 500 g kotasæla
- 1/2-1 rauðlaukur
- 1/2-1 paprika
- 1/4 gúrka
- 5-6 konfekttómar
- 1 góð lúka klettasalat, skorið smátt
- Herbamare krydd, eftir smekk
Allt skorið frekar smátt og blandað vel saman, kryddið eftir smekk
Berið salatið fram með góðu brauði eða ykkar uppáhalds kexi. Njótið í botn!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.