Þetta er stórgóður hollusturéttur sem gerir ekki flugumein fyrir kroppinn og kemur sér vel fyrir stelpurnar sem eru að taka á því í ræktinni. Ofsalega gott!
Innihald
Nautahakk kryddað eftir smekk
Fersk salat eftir smekk
Paprika
Rauðlaukur
Tómatar
Avocado
Aaco sósa
Feta ostur
Nokkur spinat blöð
Bygg hrísgrjón passa einnig ljómandi vel við ég sleppti þeim í þetta sinn. Aðferðin segir sig sjálf ef þú hefur gert taco áður en annars er þetta bara að steikja hakkið á pönnu og blanda svo eftir kúnstarinnar reglum.
Ég skreytti með valhnetum i lokin þær eru svo rosalega hollar, nota hvert tækifæri til að smygla þeim i matseld.
Dóra elskar að föndra við snittugerð en matur hefur alltaf haft mikil áhrif á hennar líf. Svo mikil að Dóra byrjar flesta morgna á að hugsa um hvað eigi að vera gott í kvöldmatinn. Hún býr á Seltjarnarnesi, á tvær æðislegar stelpur og sætasta golfara í heimi (að ólöstuðum okkar). Dóra lærði til lyfjatæknis árið 2001 en áhugamál hennar snúast um allt sem tengist mat, hreyfingu, dansi og útivist.