Við viljum prófa hollar og spennandi uppskriftir og hvað er betra en heit súpa á köldum degi?!
Ég prófaði þessa indversku súpu frá henni Auði Ingibjörgu, sérstaklega góð krydd sem kæta bragðlauka og um leið finnum við hollustuna sem fer um líkamann. Kryddin hafa góð áhrif á sogæðakerfið!
Indversk rauðlinsusúpa
- 250 g rauðar linsubaunir
- 1 laukur
- 1 paprika, rauð eða gul
- 1 msk olía
- 1/2 dós kókosmjólk
- 1 msk appelsínuþykkni
- 1/2 msk karrí
- 1 tsk túrmerik
- 1 búnt ferskt kóríander
- 1/2 l vatn.
Sneiða lauk og papriku. Grófsaxa kóríander og leggja til hliðar. Sjóða baunir sér. Steikja lauk í olíu, bæta kókosmjólk og appelsínuþykkni við, krydda með karrí og túrmerik, hræra soðnum baunum saman við, setja papriku og kóríander út í síðast.
Berið fram með góðu salati, naan brauði (sem má sleppa líka) og brosi á vör!
Guðbjörg er iþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands. Hún hefur verið í líkamsræktarbransanum frá því árið 1989. Alltaf tilbúin að taka að sér krefjandi verkefni. Haldið ýmis þjálfaranámskeið fyrir þolfimikennara og einkaþjálfara auk þess að vera stundakennari við HR íþróttafræði. Undanfarin 19 ár hefur hún starfað með Agústu Johnson en nú hefur hún stofnað sitt eigið fyrirtæki, G fit heilsurækt og elskar að taka þátt í vellíðan fólks og upplifa árangur í líkamsrækt. Guðbjörg á skilningsríkan eiginmann og þrjú yndisleg börn.