Ég elska ís og verð að fá hann reglulega. Mér finnst svo gaman að bera þessa elsku á borð eftir góða máltíð, því hann nærir allt hið innra og gerir mann svo glaðan.
Ís
- 6 bananar, vel þroskaðir
- 1 bolli möndlumjólk
- 1-2 msk. agave sýróp eða hlynsíróp
- 1 tsk vanillu duft (ég nota frá Rapzunel)
Setjið banana, mjólk, vanillu og sætuna í blandara, blandið mjög vel saman, þar til blandan er orðin silkimjúk. Hellið blöndunni í box og frystið í 20-30 mín.
Súkkulaði
- 3 msk. kókosolía, bráðin
- 1/4 bolli kakó, hreint
- 2 msk. hlynsíróp
- 1/2 tsk. vanilluduft
Hrærið öllu vel saman og frystið. Þegar að súkkulaðið hefur stífnað, skerið í litla bita.
- 1/3 bolli valhnetur, skornar smátt
Blandið súkkulaðinu og valhnetunum saman og þrýstið ofan á ísinn. Frystið áfram í 4-5 klukkustundir.
Þú toppar alla skala þegar þessi fer á borðið. Hann er súper-hollur og sjúklega góður. Njótið alla leið í botn!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.