Þessir gaurar slá allstaðar í gegn og eru alltaf vinsælir hvar sem þeir troða upp. Frábært að eiga þá í frysti. Æðislegir í veisluna, næla sér í þegar þú ert á hlaupum eða í hvaða gleði sem er.
- 6 dl spelt
- 2 tsk. vísteinslyftiduft
- 1/2 tsk sjávarsalt
- 2 msk. olífuolía
- 2 1/2 dl vatn
AÐFERÐ
- Hitið ofninn í 180°C
- Blandið spelti, vínsteinslyftidufti, sjávarsalti og olíu saman.
- Bætið vatni saman við smám saman.
- Hnoðið saman með hnoðara, þar til deigið hefur samlagast.
- Fletjið deigið út.
SÓSA
- 2 dl maukaðir tómatar
- 1 tsk oregano
- 1 tsk basilika
- 1 poki mozzarella ostur, rifinn
Blandið öllu vel saman. Smyrjið á deigið og rúllið því upp. Skerið í ca. 2 cm sneiðar. Raðið þeim á pappírsklædda bökunarplötu.
Bakið í u.þ.b. 15 mínútur.
Njótið!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.