Unga fólkið kallar heitar ídýfur eðlur en við köllum þetta bara heitar ídýfur. Þessi er tilvalin fyrir kósýkvöld, saumaklúbb eða hvaða veislu sem er.
INNIHALD
1 bolli majones
1 bolli saxaður perlulaukur eða púrra (saxa þá mjög fínt)
1 matskeið parmesan ostur
1/4 teskeið hvítlaukssalt
1 bolli rifinn ostur
söxuð steinselja
ritzkex og tekex
Hrærðu saman majonesi, lauk, parmesanosti og hvítlaukssalti. Blandaðu ostinum út í og settu í eldfast mót. Bakaðu á sirka 150-160 í 40 mínútur eða þar til osturinn er orðin fallega gylltur. Dreifðu steinselju yfir til skrauts ef þú vilt hafa þetta extra fínt.
Berið fram með kexi og/eða snakki og sjúkega góðu skapi!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.