Mér þykir þessi kanilkaka einstaklega góð og er hún mjög einföld, tilvalið að baka eina slíka köku með sunnudagskaffinu. Það gerist ekki meira kósý á svona degi en að fá sér heita kanilköku og gott kaffi á góðum sunnudegi !
Innihald :
150gr smjör
2dl sykur
2 egg
2 msk kanill
1/2 tsk salt
2 tsk vanilludropar
3 dl hveiti
1,5 dl mjólk
Aðferð:
1. Stillið ofninn á 180 gráður.
2. Bræðið smjörið í pott og látið kólna aðeins.
3. Hrærið eggin og sykurinn saman.
4. Sigtið öll þurrefnin saman í skál og blandið saman.
5. Blandið næst öllum hráefnum í vökvaformi saman við líka smjörinu.
6. Smyrjið form og hellið deiginu í og bakið í m 25-30 mínútur
Vanilluglassúr:
2 egg
100 gr flórsykur
50 gr smjör
60 gr hvítt súkkulaði
Aðferð:
1. Hrærið saman egg og flórsykur.
2. Bræðið smjörið og hvíta súkkulaðið saman, passið má ekki sjóða.
3. Blandið súkkulaðiblöndunni saman við eggin og flórsykurinn og hrærið saman.
4. Leyfið kökunni aðeins að kólna í ca 15 mínútur og hellið svo vanilluglassúr yfir.
Mjög gott að setja kókosflögur ofaná eða pekanhnetur – Verði ykkur að góðu!
Una Dögg Gudmundsdòttir er 28 àra Seltirningur sem býr nú í Vesturbæ ásamt eiginmanni og tveimur dætrum, 7 og 2 ára.
Una Dögg lauk BA prófi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands, en verandi pjattrófa inn að beini hefur hún einnig lært nagla og förðunarfræði. Una elskar að baka og elda en henni finnst best að hafa uppskriftirnar einfaldar, fljótlegar og auðvitað dásamlega góðar.