Gróf tómatapizza með mozzarella/kotasælu, ofnbökuðum kirsuberjatómötum og grænmetissalati.
Þessi er bæði góð, girnileg og heilsusamleg og það verður ljúft að njóta hennar…Til dæmis með góðu rauðvíni og í fallegum félagsskap.
Þetta verður pizza sumarsins. Hér er uppskriftin… stútfull af vítamínum og bætiefnum.
Botn
3½ dl heilhveiti
½ tsk sjávarsalt
• vínsteinslyftiduft/lyftiduft á hnífsoddi
1½ dl vatn
4 msk tómatamauk
1. Blandið fyrstu þremur hráefnunum saman í skál.
2. Setjið vatn og tómatamauk saman við. Hærið. Bætið meira heilhveiti saman við ef þurfa þykir.
3. Hnoðið létt og skiptið deiginu í 6 parta. Fletjið hvern part út í þunnan hring sem er u.þ.b. 22 cm í þvermál.
4. þurrsteikið á pönnu, báðum megin.
Ofnbakaðir kirsuberjatómatar
300 g kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
½ tsk þurrkað oreganó
• smá sjávarsalt
• smá svartur pipar
¼ tsk hrásykur
1 msk ólívuolía
1. Stillið ofninn á 220°.
2. Setjið tómatana á bökunarplötu klædda bökunarpappír. Sáldrið kryddi og sykri yfir. Hellið olíunni jafnt yfir. Bakið í 20-25 mínútur.
Grænmetissalat
100 g klettasalat
1 stk lárpera, skorin í þunnar sneiðar
300 g ofnbakaðir kirsuberjatómatar
3 msk ristaðar furuhnetur
2 stk mozzarellakúlur, rifnar niður eða 250 g kotasæla
1 stk búnt fersk basilíka, u.þ.b. 40 g
1½ tsk rauðvínsedik
6 msk ólívuolía
• sjávarsalt og svartur pipar eftir smekk
Maukið basilíkuna og rauðvínsedikið í matvinnsluvél eða með töfrasprota. Hellið olíunni saman við á meðan vélin er að vinna. Smakkið til með salti og pipar. Leggið salatið á pizzubotnana. Raðið tómötum, osti og lárperu yfir. Dreifið salatsósunni jafnt yfir pizzurnar. Sáldrið loks furuhnetunum yfir.
Njótið í góðum selskap meðan hlustað er á góða tónlist… helst með ítölsku ívafi.
Höfundur: Erna Sverrisdóttir og fleiri uppskriftir HÉR

Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.