Undirbúningur um 10 mínútur · matreiðsla um 10 mínútur
Það er fátt betra en að skella góðum laxi á grillið og njóta með góðu hvítvíni svona yfir sumartímann. Flestan feitan fisk er einfalt að grilla og staðinn fyrir laxinn er hægt að nota væna bleikju eða lúðu. Hér kemur uppskrift af Gott í matinn.is en hér erum við með mjög girnilega mangó sósu með laxinum. Einföld og verulega góð uppskrift sem við hvetjum þig til að prófa. Það er nefninlega hægt að grilla svo margt!
Innihald
- salt og pipar
- olía
- handfylli af salati
- 800 g lax
- 1 mangó, afhýtt og grófrifið
- 1 grilluð rauð paprika, skorin í strimla
Rjóma mangó-sósa
- ögn af karrídufti
- 1 g sýrður rjómi (1 dós), 10%, Gott í matinn frá MS
- 1 mangó, afhýtt og skorið í litla bita
- ½ límóna, safi og fínrifinn börkur
- 3 límóna, safi og fínrifinn börkur
Aðferð
Hitið grillið vel. Smyrjið olíu á grillgrindurnar og á fiskinn. Gott er að nota fiskiklemmu undir flakið. Grillið laxinn í 3–4 mínútur, fyrst á roðlausu hliðinni og síðan 3–4 mínútur á roðhliðinni.
Saltið og piprið og berið strax fram heitt með rjóma-mangó-sósunni, rifnu mangói, grillaðri papriku og handfylli af salatblöðum.
Búið sósuna til með því að mauka allt saman með rafmagnssprota eða í matvinnsluvél.
Höfundur: Inga Elsa Bergþórsdóttir
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.