Hvort sem hann er soðinn, grillaður í álpappír eða bakaður í ofni, það eru ótal leiðir til að útbúa góðan lax og ekki er verra að hafa ljúffenga sósu með.
Hér er uppskrift sem er algjörlega þess virði að prófa og sér í lagi ef þú ert þessi sem ræktar þínar eigin kryddjurtir. Fullkominn sumarréttur fyrir þau sem ekki hafa endalausa lyst á grilluðu kjöti. Fyrir fjóra.
- 4 laxaflök
- 25 g. fersk basil lauf
- 25.g fersk mynta
- 200 ml ólífuolía
- 1 eggjarauða
- 1 tsk sinnep
- 2 msk rjómi
- Fínt rifinn börkur og safi úr einni sítrónu
- Aukalega: Olía, salt og malaður pipar
AÐFERÐ
1. Settu svolítið vatn í pott og láttu suðuna koma upp. Settu kryddlaufin í vatnið í 15 sekúndur. Láttu svo vatnið renna af þeim.
2. Kreistu allt auka vatn úr laufunum með viskustykki. Láttu svo kryddjurtirnar í blender og hrærðu saman við ólífuolíuna. Láttu standa í 15 mín.
3. Hrærðu saman í skál, eggjarauðu, sinnepi og bætti við pipar og salti. Hrærðu þetta saman þar til sósan er orðin mjúk.
4. Bættu svo út í olíunni með kryddinu og blandaðu rólega þar til úr verður þykk og kremuð sósa, eins og mjúkt majones. Bættu þá í sítrónuberki, safa og rjómanum. Settu að lokum inn í ísskáp.
5. Settu ólífuolíu á laxinn og grillaðu á miðlungs háum hita í um 4 mín á hvorri hlið. Einnig er hægt að vefja laxinn í álpappír.
6. Berðu fram með sósunni, salati og góðu brauði!
Njótist helst utandyra í sól og góðu veðri!
Ég er af X-kynslóð, elska 70’s tónlist, finnst gott að fara í sund á kvöldin og á erfitt með arfa i görðum. Kýs fjölbreyti í lífið. Kann eina Eminem plötu utanað. Hef thing fyrir Marilyn Monroe, áhuga á feminisma og svona sitthvað fleira.