Kúrbítur bragðast ekki af miklu í sjálfu sér en hann má matreiða þannig að flestir sem smakka koma aldrei til með að gleyma réttinum.
Paprikuflögur eða þurrkuð paprika er ljúft og gott krydd ofan á kúrbítinn en þetta má oft fá í asískum matvöruverslunum, og stundum í hefðbundnum. En svona gerir þú:
1. Hitaðu ofninn í 225.
2. Skerðu kúrbítinn langsum og þversum eins og á myndinni. Ekki skera í gegn alla leið.
3. Leggðu kúrbít á bökunarplötu og helltu yfir smá ólífuolíu og saltaðu og kryddaðu.
Hitaðu í ofninum í 20 mínútur. Má grilla ögn í lokin.
Meðan kúrbíturinn er í ofninum skaltu blanda saman í dressinguna. Þú notar t.d. salt, sítrónu, hálft eða heilt pressað hvítlauksrif, basil, myntu og smávegis edik. Smakkaðu þig áfram. Besta bragðið vinnur. Auðvitað er svo líka hægt að nota önnur krydd eða nota kúrbítinn sem meðlæti með t.d. góðum fiskrétti.
Njótið með góðri samvisku!
Fjölbreytileiki og góður fílíngur er mottó Pjattsins. Engar smellabeitur, bara endalaust af góðu efni, blogg, pistlar, uppskriftir, heilræði, heilsutips, menning, bækur, andlega hliðin og allskonar, allskonar enda höfum við verið í loftinu síðan 2009.