Ég sæki mikið í léttari mat þar sem undirstaðan er grænmeti. Þessi baka er hreint út sagt lostæti en þú getur auðvitað skipt út grænmetinu að þínum smekk.
- 240 gr spelt
- 120 gr smjör, við stofuhita
- 2 msk. kalt vatn
- 1/2 tsk. sjávarsalt
AÐFERÐ
- Blandið spelt, smjöri, vatn og salti í skál og hnoðið saman (ég notaði hnoðaran í hrærivélinni).
- Setjið deigið í plastfilmu og pakkið því vel inn og geymið í kæli í 30 mín.
- Hitið ofninn í 180°C.
- Fletjið deigið út og setjið í kringlótt form og dreyfið vel úr því upp á kantana.
- Stingið nokkur göt í botninn með gaffli og forbakið bökuna í 10-15 mín.
- 500 gr sætar kartöflur, skrældar og skornar í þunnar sneiðar
- 500 gr spergilkál, soðið
- 1 laukur, skorinn í sneiðar
- 3-4 hvítlauksrif, pressuð
- 100 gr. fetaostur (hreinn), skorinn í bita
- 3 egg
- 2 1/2 dl grísk jógúrt ( ég nota frá Bíó-Bú)
- 1 tsk. timjan
- steinselja
- salt og nýmalaður pipar
AÐFERÐ
- Forbakið kartöflur í 20-25 mín.
- Léttsteikið lauk og hvítlauk og kryddið með timjan og pipar.
- Bætið kartöflunum og spergilkálinu á pönnuna og blandið fetaosti saman við. Setjið blönduna í bökuna.
- Pískið saman egg og jógúrt, hellið yfir bökuna.
- Stráið steinselju, salti og pipar yfir.
- Bakið í 30-40 mín.
Oft skipti ég út spergilkálinu fyrir gulrætur og forbaka þær með kartöflunum. Einnig finnst mér æði að skella maískorni í blönduna. Berið bökuna fram með fersku salati. Eða bara eina og sér á sjálft veisluborðið.
Unaðsleg hollusta sem hentar í hvaða gleði sem er. Verði ykkur að góðu og njótið vel.
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.