Þær sem hafa prófað það vita að það er ótrúlega hressandi að byrja nýjan dag á grænum safa.
Þeir geta innihaldið allskonar grænmeti og ávexti en best er að hafa sem mest af grænu, t.d. spínat, græn epli, sellerí, avocado og svo framvegis.
Græna þruman er mjög vinsæll drykkur hjá Lifandi markaði og ótrúlega bragðgóður!
- 1 grænt epli
- bútur engifer, rifinn
- lúka spínat
- lúka rucola
- 1 mangó eða 1 bolli frosið mangó
- nokkrar döðlur, gott að láta liggja fyrst í vatni
- hnífsoddur cayenne pipar
- 1 msk grænt duft(má sleppa)
- 1 msk grænt te (má sleppa)
- klaki
- eplasafi eða vatn til þynningar
Allt látið í blandara og blandað vel saman. Svo er bara að njóta í stóru flottu glasi, krukku eða könnu. Hefur góð áhrif á meltinguna og orkuna fyrir daginn.
Guðbjörg er iþróttakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands. Hún hefur verið í líkamsræktarbransanum frá því árið 1989. Alltaf tilbúin að taka að sér krefjandi verkefni. Haldið ýmis þjálfaranámskeið fyrir þolfimikennara og einkaþjálfara auk þess að vera stundakennari við HR íþróttafræði. Undanfarin 19 ár hefur hún starfað með Agústu Johnson en nú hefur hún stofnað sitt eigið fyrirtæki, G fit heilsurækt og elskar að taka þátt í vellíðan fólks og upplifa árangur í líkamsrækt. Guðbjörg á skilningsríkan eiginmann og þrjú yndisleg börn.