Á dimmum rigningardögum sem þessum getur verið gráupplagt að luma á golfarasnittu í ísskápnum, tala nú ekki um til að maula með HM.
Golfarasnitturnar eru auðveldar, gómsætar, gleðja augað og rífa golfara upp i hæðstu hæðir.
Þær eru matarmiklar, hressandi, fullar af vitamínum, klárast alltaf og eru einstaklega fallegar á disk! Þú notar eftirfarandi til að útbúa ómótstæðilega golfarasnittu:
- Nýbökuð kornstöng með sinnepsrönd
- Roastbeef
- Harðsoðið egg
- Rauðlaukur
- Steiktur laukur
- Rauð paprika
- Agúrka
- Kokteiltómatar
- Sítrónupipar og dass af svörtum pipar
- Salatblöð eftir smekk
Sítrónusneiðar og létt remólaðirönd í lokin, skreytt með sólblómum á toppnum(bara fegurðartrix) matarmikil og kjörin HM snitta með ísköldum öl!
Dóra elskar að föndra við snittugerð en matur hefur alltaf haft mikil áhrif á hennar líf. Svo mikil að Dóra byrjar flesta morgna á að hugsa um hvað eigi að vera gott í kvöldmatinn. Hún býr á Seltjarnarnesi, á tvær æðislegar stelpur og sætasta golfara í heimi (að ólöstuðum okkar). Dóra lærði til lyfjatæknis árið 2001 en áhugamál hennar snúast um allt sem tengist mat, hreyfingu, dansi og útivist.