Þessar dásamlegu kökur er ótrúlega auðvelt að gera. Hvort sem þú forðast glúten eða ekki, þá slá þær í gegn.
Mér finnst líka algjört æði að grípa í þegar mig langar í eitthvað fallegt og gott.
INNIHALD
- 1/4 bolli kókos hveiti
- 1/2 bolli olía
- 2 msk hrásykur
- 1 þroskaður banani
- 2 egg
- 1 tsk kanill
- 1 tsk vanilla
- klípa salt
- 1/2 tsk matarsódi
- 1 bolli kókos
AÐFERÐ
- Hitið ofninn í 180 ° C.
- Blandið öllum þurrefnunum (nema kókos), olíu, banana og hrásykri vel saman, best að nota matvinnsluvél.
- Bætið eggjum og vanillu saman við, hrærið öllu vel saman.
- Blandið kókos varlega saman við með sleif.
- Setjið á pappírs-klædda plötu með matskeið, mótið hverja köku.
- Bakið um 10 mínútur eða þar til þær hafa tekið á sig fallegan gylltan lit, en samt mjúkar.
Til að setja þessa gullmola í sparibúning set ég ca. 50-100 gr. 70% súkkulaði í deigið sem ég saxa frekar smátt.
Þeirra nærvera toppa alla gleði. Njótið alla leið!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.