Ég fékk frábæru matreiðslubókina – Af bestu lyst 1-3, í jólagjöf í fyrra og er þessi uppskrift ein af fjársjóðunum af hennar blaðsíðum.
Af bestu lyst er alveg hreint frábær bók, hún inniheldur nefnilega nóg af reglulega einföldum og góðum heimilismat sem er fljótlegt að hafa til en er jafnframt hollur og góður. Bókin er líka gefin út í samvinnu við Hjartavernd, Krabbameinsfélagið og Lýðheilsustöð, þannig þú ættir að geta treyst á upplýsingarnar!
Fyrir utan ýmis konar fróðleik um næringu er bókin stútfull af frábærum uppskriftum, og fyrir þá sem vilja vera sérlega vel upplýstir eru upplýsingar um næringarinnihald hvers rétts einnig uppgefnar.
Hráefni
- 400 gr nautahakk
- 1-2 matskeiðar ólífuolía á pönnuna
- 1 laukur
- 2-3 hvítlauksgeirar
- ¼ rauður chillipipar
- 3 tsk chilliduft (líka hægt að nota cuminduft)
- 4 msk maukaðir tómatar
- 1 dl chillisósa
- 1 dl vatn
- 1,5 dl kjúklingabaunir
- 4 stórar rauðar paprikur
Aðferð
- Brúnið kjötið í olíunni
- Saxið laukinn, pressið hvítlauksgeirana og bætið út á kjötið, léttsteikið í 3 mínútur.
- Fínsaxið chillipiparinn og blandið saman við kjötið ásamt chillikryddinu, maukuðu tómötunum, chillisósunni og vatninu. Látið sjóða við vægan hita í 5 mínútur. Hrærið í af og til.
- Bætið baununum út í og sjóðið áfram við vægan hita í 5 mínútur.
- Skerið paprikurnar til helminga, fjarlægið fræin og sjóðið við mjög vægan hita í léttsöltuðu vatni í þrjár mínútur
- Bragðbætið sósuna ef þarf, fyllið síðan paprikuhelmingana
Uppskriftin er fyrir fjóra og gott er að bera réttinn fram með soðnum hrísgrjónum og grænmetissalati!
Ég er í tæpar 30 mínútur að töfra þetta fram, einföld og fljótleg uppskrift og umfram allt mjög bragðgóð. Ég mæli með bókinni Af bestu lyst!
Sveindís Þórhallsdóttir útskrifaðist í vor með BS gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands en býr nú í fallegum bæ á Finnlandi þar sem hún leggur stund á mastersnám í íþrótta- og æfingasálfræði. Sveindís er jafnframt einkaþjálfari, heldur úti fjarþjálfun á vefsíðu sinni og hefur mikinn áhuga á hvers kyns hreyfingu og heilbrigði.
Pole fitness á hug hennar allan og fríkvöldunum er oftar en ekki varið í að teygja fyrir framan sjónvarpið. Hún á eitt stykki frábæran kærasta og dreymir um að bæta kisu á heimilið.