Ég er mikið fyrir einfalda orku- og næringamikla rétti sem hægt er að gera mikið magn af í einu til þess að geyma.
Hérna er einn réttur sem móðir mín eldar stundum og er orðinn einn af mínum uppáhalds!
INNIHALD
Heilhveiti/spelt penne pasta
Nýrnabaunir (í dós eða óeldaðar)
Túnfiskur (olíu eða vatni)
Fetaostur
Krydd
Byrja á því að hita ofninn í ca 200°C. Sjóða pastað, sjóða baunirnar ef þær eru keyptar óeldaðar, blanda svo þessu öllu saman í eldfast mót og krydda. Ég nota ítalskt pastakrydd eða herbs en provance frá Pottagöldrum, smá oregano og svo salt og pipar. Læt þetta vera inní ofni í ca 10 mínútur og voila!
Hægt er að prufa sig svo áfram með þennan rétt og setja allskonar baunir eða fræ, rauðlauk eða bara hvað sem er útí. Mjög einfalt, hollt, gott og fljótlegt. Og frábært sem nesti í vinnuna næsta dag!
Krabbastelpan Eva Rós er fædd árið 1989, á tvö börn og góðan mann. Eva er mikill áhugamaður um hverskyns gamanmál en einnig uppeldi, ferðalög, heilsu, líkamsrækt, vín, matreiðslu, veisluhöld, kokteilagerð og góða þjónustu. Mottó Evu í lífinu er einfalt: Hver er sinnar gæfu smiður