Stundum getur það verið hausverkur hvernig salat maður á að hafa með mat en hér er eitt ofureinfalt og dásamlega gott salat sem mig langar að deila með þér.
Þetta er meira svona að “smella fingri” í framleiðslu og er tilbúið á örskotstundu.
Innihald
- 1 poki klettasalat (rucola)
- 1/2 poki veislusalat
- Smá klípa basilika
- 1/2 ferskur ananas, skorinn í bita
- 1/2 kubbur hreinn fetaostur, skorinn litla bita
- ca.1/2 poki kasjúhnetur, muldnar (eða aðrar hnetur)
- ólífu olía
Aðferð
Öllu blandað vel saman, örlítilli olía sett yfir.
Ananasinn og basilikan er alveg “trendið” í salatinu, gefur fullkomið bragð. Svo ferskt og gott..mmm!
Guðný H. Sigmundsdóttir er hársnyrtir að mennt og með gífurlegan áhuga á flestu sem eykur á heilbrigði og vellíðan. Hún elskar að baka og útbúa hollan mat, hefur brennandi áhuga á leiklist og hefur stundað hana í tvö ár ásamt því að starfa sem sölu og markaðsmanneskja.